Ofvirkni, rúsínur og torfæra
Aldurinn er að færast yfir mig!! svoldið skerí! í dag er sem sagt langþráður frídagur með engin plön nema að vinna upp svefnleysi og rólegheit.. nei!! gamla vaknaði klukkan 630 og getur ekki með nokkru móti sofnað aftur! það er ekki eins og eg hafi sofnað snemma í gær.. Átti alveg ljómandi ljúfa og skemtilega kvöldstund .. ;) .. og kom ekki heim fyrr en rúmlega 2 og held reyndar að klukkan hafi verið um 3 þegar það slokknaði á mér.. hvað geriri maður af sér klukkan 7 a morgnanna?????? ...aaaarg!
Það er þvílíkt eirðarleysi í mér að ég er að tapa mér.. geri mér fulla grein fyrir því að þetta er ef til vill tími til að drepa ofvirknikvikidnið, róa sig bara niður og ballansera sig... ég er alveg að reyna! en það er ekki að gera sig. Held að ástæðan sé sú að í gær dag tók ég slökun sem ætti að duga mér fram í næstu viku. Fór í sund og dundaði mér það í 2 tíma, afraksturinn var sá að ég var eins og rúsína það sem eftir var dags og fékk á mig svartan blæ af sólinni. það var ekkert smá ljúft að dingla sér þarna á milli potta og sólbaðs.... engar áhyggjur.. fór ekki mín í sunlauginna þannig engin líkamsæfing átti sér stað! ;) Talandi um það... skil ekkert í mér að hafa ekki farið í sprikl núna í þó nokkurn tíma. Bakið er farið að segja til sín og hrópar á æfingu, tala nu ekki um hálsin... dam.. þýðir ekki bara að tala um þetta.. nú verður bara að framkvæma... hehe.. var þetta sannfærandi??? sjáum til :)
Akureyri á morgun ! ætlum að leggja af stað i fyrramálið og trítlast norður í rólegheitunum. Íbúðin er rúmlega 90 fm !! fjagra herbergja luxus pleis með öllu tilheirandi.. þannig við komum örugglega ekki heim fyrr en á næstu helgi hehe.. Vorum að tékka á sjallanum í gær.. og gaman að segja frá því að það er torfærumót stemning alla helginna og dúndur hljómsveitin saga class að spila á laug....hhhhmmmm... Reyndar minnti það mig á að síðast þegar eg fór í svona helgarferð til AK þá var einnig torfærumót og man ekki betur en að eg hafi vaknað einn morguninn með gullverðlaun frá því móti um hálsin!! Einhverjum hefði greinilega fundist að eg verðskuldaði það hehe :) Þetta er allt voðalega spennandi og eg hlakka til ;) Búin að taka saman digital vélina og tölvan er klár svo ég geti deilt vitleysunni og ferðinni ;)

0 Comments:
Post a Comment
<< Home